Mel Gibson (54): Fær nálgunarbann á fyrrum kærustu og barnsmóður sína
Mel Gibson er að reyna að fá nálgunarbann á fyrrum kærustu sína, rússnesku söngkonuna Oksana Grigorieva.
Parið hætti saman í apríl en þau eiga saman sjö mánaða dóttur, Luciu.
Ekki liggur fyrir hvers vegna Gibson fer fram á nálgunarbannið en ljóst má vera að samskipti þeirra hafa farið úr böndunum. Þrír mánuðir eru liðinir frá því að parið tilkynnti um skilnað sinn en þau hugðust deila forsjá með barninu og heiðra foreldrahlutverkið.
Mel Gibson segist eiga í margvíslegum samskiptavanda við barnsmóður sína, meðal annars hvað varðar umgengni við barnið.
Oksana hefur gefið í skyn að þrátt fyrir fallegar fyrirætlanir við sambandsslitin hafi ástæðan fyrir þeim verið ófyrirséð og ekki að hennar skapi.
„Við hættum saman í skyndi en því miður get ég ekki gefið upp ástæðuna,“ sagði hún en bætti við að heimurinn ætti þó fljótlega eftir að komast að því.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is