Föstudagur 25.06.2010 - 07:50 - Ummæli ()

Valsmenn meðal stærstu skuldara SPRON

Mynd af hluta þess svæðis sem um ræðir. Mynd/Almenna verkfræðistofan

Fjárfestingafélagið Valsmenn hf. er níundi stærsti skuldari SPRON. Félagið fjárfesti í byggingarlandi á Hlíðarenda þar sem ráðgert var að byggja íbúða- og atvinnuhúsnæði.

Félagið fjárfesti í 35 þúsund fermetra landsvæði árið 2005 fyrir tæpar 860 milljónir króna með láni frá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Ráðgert var að hefja mikla uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á svæðinu en Valsmenn hf. eiga allt land á svæðinu sem er ekki undir íþróttamannvirkjum Vals. Á milli 250 og 300 íbúðir áttu meðal annars að rísa á svæðinu.

Fjárfestingafélagið og dótturfélag þess hafa skuldsett sig um 3 milljarða króna þrátt fyrir að félagið hafi ekki hafið þá uppbyggingu á Hlíðarendasvæðinu sem ráðgerð var árið 2005 þegar landið var keypt af Reykjavíkurborg.

Samkvæmt DV í dag færðu Valsmenn hf. eignir og skuldir félagsins inn í dótturfélagið Hlíðarfót þar sem þær eru í dag. Samkvæmt ársreikningum félaganna tveggja átti þessi eignatilfærsla sér stað þeirra á milli með yfirtöku skulda. Athygli vekur að lóðasamningurinn við Reykjavíkurborg er metinn á 2,6 milljarða króna í ársreikningi Hlíðarfótar fyrir árið 2008 en það þýðir umtalsverða hækkun á nokkurra ára tímabili. Verðmatið er því nokkurn veginn jafn hátt og skuldir félagsins.

Aðstandendur Valsmanna og stjórnarmenn eru meðal annarra Brynjar Harðarson, sem er stjórnarformaður, Jafet Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri VBS fjárfestingarbanka, Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður og Guðni Bergsson, fyrrverandi knattspyrnumaður.

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er minnst á Valsmenn hf. í yfirliti yfir stærstu áhættuskuldbindingar hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Þar kemur fram að skuldir Valsmanna við sparisjóðinn hafi numið rúmum 1200 milljónum króna í október 2008 og að félagið hafi verið níundi stærsti skuldari sjóðsins. Þessar skuldir eru nú inni í Hlíðarfæti.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is