Viðskipti Laugardagur 26.06.2010 - 17:37 - Ummæli ()

Landsfundur Sjálfstæðis- flokks samþykkir ályktun um afsagnir forystumanna

Frá landsfundinum í dag. Fálkinn hefur horfið af sviðinu.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag ályktun þar sem skorað er á forystu flokksins um land allt að íhuga vel stöðu sína með tilliti til framtíðar flokksins. Þeir sem hafi þegið háa styrki og meiri fyrirgreiðslur en almenningi stóð til boða sýni ábyrgð með því að stíga til hliðar.

Séra Halldór Gunnarsson bar tillöguna fyrst upp í morgun og fór svo fram á að hún yrði hluti af stjórnmálaályktun flokksins. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fundarstjóri, hélt í fyrstu að ekki væri fylgi fyrir því að tillagan yrði rædd, en eftir kröftug mótmæli var hún tekin á dagskrá og síðan samþykkt.

Í máli sínu í morgun nefndi Halldór sérstaklega þá Guðlaug Þór Þórðarson og Gísla Martein Baldursson, en hann taldi að enn fleiri ættu að íhuga stöðu sína


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is