Vinna meira en þéna minna. BHM hefur áhyggjur af þróun á vinnumarkaði

Meira unnið fyrir minni laun
Sífellt fleiri leggja nú harðar að sér í vinnu en þiggja fyrir minni laun samkvæmt kjarakönnun Bandalans Háskólamanna sem birt er í dag. Eru niðurstöður hennar svipaðar og fyrir ári síðan; vinnuálag flestra hefur aukist talsvert en laun fyrir hafa gjarnan verið skorin við nögl.
Telja yfir 70 prósent aðspurða í könnun BHM meðal félagsmanna sinna að álag hafa aukist á síðustu mánuðum en í sams konar könnun fyrir ári síðan svöruðu 60 prósent þessari spurningu játandi. Er álag á vinnustað orðið meðal helstu áhyggjuefna bandalagsins um þessar mundir.
Bent er á að ekki er ráðið lenugr í störf sem losna af eðlilegum orsökum, svo sem við upphaf töku lífeyris eða þegar starfsmenn hætta störfum að eigin ósk. Tímabundnir samningar hafa ennfremur verið látnir renna sitt skeið án endurnýjunar. Endurskipulagning hefur einnig haft í för með sér uppsagnir í einhverjum mæli, auk þess sem starfshlutfall hefur víða verið fært niður.
Á sama tíma játa 70 prósent að laun eða tekjur þeirra á þessum sama tíma hafi lækkað eða staðið í stað og er því töluverð kaupmáttarrýrnun hjá stórum hópi fólks. Segir BHM að ekki verði lengur unað við slíkt og á þessu verði tekið í undirbúningi kjarasamninga sem framundan séu í haust.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is