Birki Fannar Einarsson bráðvantar vinnu: Á auðvelt með að vinna í hópum
Sumir deyja ekki ráðalausir þó að skóinn kreppi og hart sé í ári.
Birkir Fannar Einarsson er atvinnulaus ungur maður sem sýnir hér og sannar í verki að hann er hugmyndaríkur eins og hann segir sjálfur.
Á vefslóðinni vantarvinnu.is hefur Birkir Fannar komið upp heimasíðu þar sem hann kynnir sjálfan sig og tíundar kosti sína. Hann segist hafa unnið fjölbreytt störf, allt frá sjómennsku til markaðsmála og hann segist eiga auðvelt með að vinna í hópum.
Undir mynd þar sem hann lætur móðann mása um kosti sína er hægt að smella á hnapp sem á sendur „Ráða mig“ en Birkir lætur jafnframt símanúmerið sitt fylgja með og það er auðvelt að muna.
Áhugasamir geta kíkt á þessa vefslóð: www.vantarvinnu.is og kynnt sér kosti og hæfileika Birkis.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is