Föstudagur 02.07.2010 - 13:41 - Ummæli ()

Loks skriður á viðræður vegna Icesave. Undirbúningsfundir í gangi

Þráðurinn loks tekinn upp að nýju vegna Icesave

Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands hafa hist í gær og í dag til að undirbúa frekari viðræður þjóðanna vegna Icesave reikninga Landsbankans en eru þetta fyrstu fundir þjóðanna vegna málsins um þriggja mánaða skeið.

Fyrst og fremst er um undirbúning að ræða samkvæmt tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Sem fyrr er bandaríski lögfræðingurinn Lee Buchheit fyrir íslensku samninganefndinni en auk hans skipa nefndina Guðmundur Árnason og Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjórar fjármálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis, ásamt Jóhannesi Karli Sveinssyni lögmanni og Lárusi Blöndal lögmanni. Þeim til ráðgjafar eru sérfræðingar frá erlendu ráðgjafafyrirtæki og erlendri lögfræðistofu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is