Laugardagur 03.07.2010 - 17:19 - Ummæli ()

Gengistryggðu lánin. Lögmenn mögulega bótaskyldir vegna gáleysis

Eru lögmenn ábyrgir fyrir tjóni vegna gengistryggðu lánanna?

Að mati bandarísks lögmanns er ekki fráleitt að ætla að fjöldi íslenska lögmanna séu bótaskyldir fyrir að leggja blessun sína yfir hin ólöglegu gengistryggðu lán sem hér hafa verið veitt til fjölda ára. Telur lögmaðurinn víst að bankar og fjármálafyrirtæki hljóti að beina sjónum sínum að þeim í kjölfar dóms Hæstaréttar.

Lögmaðurinn, James Lee, segir við Morgunblaðið að vissum skilyrðum þurfi að fullnægja til að sýna fram á fjárhagslegt tjón og sanna þurfi að um gáleysi hafi verið að ræða. Hafa þarf þó í huga að lög um lögfræðinga eru önnur hér á landi en í Bandaríkjunum.

Skilyrðin segir hann vera að samningar hafi verið bornir undir lögfræðinga og þeim ljáðst að uppgötva að um ólögmæta samninga væri að ræða. Þá þurfi fjármálastofnunin að hafa treyst því áliti og boðið umrædd lán og síðast en ekki síst þarf að benda á tjón af þessum völdum í kjölfarið.

Samkvæmt íslenskum lögum er lögmönnum skylt að hafa gilda ábyrgðartryggingu hjá tryggingafélagi vegna hugsanlegs tjóns.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is