Laugardagur 03.07.2010 - 17:36 - Ummæli ()

HM 2010: Spánn mætir Paraguay. Sigurliðið mætir Þjóðverjum

Fagnar Spánn sigri á eftir?

Annar leikur dagsins í Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu hefst innan stundar en þar mætast landslið Paraguay og Spánar en sigurvegarinn úr leiknum fær það erfiða verkefni að mæta Þýskalandi í fjögurra liða úrslitunum.

Fáir sparkáhugamenn efast um að Spánn er of stór biti fyrir Paraguay sem verður engu að síður að teljast eitt af spútnikliðum keppninnar í ár. Maður á mann eru spænsku leikmennirnir klassa ofar en andstæðingar þeirra í dag og hætt við að stórt hjarta og kjarkur dugi lítt í þetta skiptið.

Vekur það athygli spænskra fjölmiðla að del Bosque þjálfari Spánar leggur upp með sama byrjunarlið og í sigurleiknum gegn Portúgal en það er aðeins í annað skipti í sögunni sem slíkt gerist hjá spænsku landsliði á HM.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is