Lokun hjálparstofnana ýtir við ráðherra. Fundar með hagsmunaaðilum

Félagsmálaráðherra fundar með hjálparstofnunum og sveitarfélögum
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, hyggst funda með helstu hagsmunaaðilum vegna þess vanda er upp er kominn vegna sumarlokana hjálparstofnana. Eins og Eyjan hefur greint frá loka helstu hjálparstofnanirnar, Fjölskylduhjálpin og Mæðrastyrksnefnd, dyrum sínum á sama tíma og verða nauðstaddir að gera sér að góðu að bíða einn og hálfan mánuð eftir næstu úthlutun nauðsynja.
Samkvæmt fyrirspurnum fréttastofu RÚV var ekki eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu með áætlun vegna þessa og virðast fréttirnar hafa komið einhverjum forsvarsmönnum beinlínis á óvart. Aðeins sé unnið eftir hefðbundnum framfærsluskyldum.
Hefur Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi Vinstri grænna í velferðarnefnd Reykjavíkur, óskað eftir aukafundi í ráðinu vegna fréttanna enda ljóst að fyrir fólk með ekkert milli handanna er einn og hálfur mánuður heil eilífð.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is