Sunnudagur 04.07.2010 - 10:50 - Ummæli ()

Mikið horft á HM: 9 af 10 vinsælustu dagsrkárliðum Sjónvarpsins

Sex af hverjum tíu landsmönnum horfðu á Argentínumenn leggja Mexíkóa.

Nýjar tölur Capacent um áhorf á sjónvarp sýna að Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu nýtur gífurlegrar hylli hjá notendum RÚV. Af 10 vinsælustu dagskrárliðum RÚV vikuna 21.-27. júní voru 9 liðir tengdir HM í Suður-Afríku. Þar af voru sjö leikir í beinni útsendingu og tvö HM-kvöld, að því er segir í Morgunblaðinu.

Af öðrum liðum er það aðeins hinn skoski Taggart lögregluforingi sem nær inn á listann, en hann er í 8. sæti. Jafnvel fréttir ná ekki inn á þennan lista. Mesta áhorfið var á beina útsendingu frá leik Argentínu og Mexíkó. Hlutfall þeirra sem horfðu á leikinn í 5 mínútur eða lengur, þ.e. svokallað uppsafnað áhorf, var 59,2%. Miðað er við aldurshópinn 12-80 ára. Argentína nýtur greinilega mestra vinsælda af liðum á HM því næstflestir horfðu á leik Argentínu og Grikklands, eða 51,5%. Hjá aldurshópnum 12-49 ára var HM í níu efstu sætunum. Aðþrengdar eiginkonur náðu 10. sætinu.

Mælingar Capacent sýna einnig að RÚV hefur mikla yfirburði yfir aðrar sjónvarpsstöðvar þegar heildaráhorf er skoðað. RÚV er með 64,4% áhorf, Stöð 2 er með 17,5% áhorf og Skjáreinn með 6,4% áhorf.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is