Nýtt fasteignamat lækkar tekjur sveitarfélaga um 700 milljónir
Sveitarfélögin verða af ríflega 700 milljónum króna vegna lægra fasteignamats fyrir næsta ár. Reykjavíkurborg á nærri 40% af upphæðinni, eða 270 milljónir króna.
Fasteignamat ríkisins gaf út nýtt og breytt fasteignamat í vikunni og var matið í langflestum tilvikum lækkað vegna breytinga á húsnæðismarkaði að undanförnu. Því munu eigendur húsnæðis að óbreyttu greiða lægri fasteignagjöld með þeim afleiðingum að sveitarfélögin fá minni tekjur.
Fjármálaskrifstofa borgarinnar skoðar nú með borgarfulltrúum hvernig bregaðst eigi við tekjutapinu á næsta ári. Óttarr Proppé, borgarfulltrúi Besta flokksins sagði á RÚV að farið hafi verið yfir útreikninga en ákvarðanir liggi ekki fyrir. Borgin hefur tíma fram á áramótum til að ákveða hvernig hún bregst við málinu.
Borgin fær nú 2,7 milljarða króna í gegnum fasteignaskatta, en svigrúmið samkvæmt lögum er fimm milljörðum meira.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is