Viðskipti Mánudagur 05.07.2010 - 19:33 - Ummæli ()

Jón Ásgeir búinn að greiða upp 1,3 milljarða lán fyrir lúxusíbúð á Manhattan

Húsnæðislán Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að upphæð tíu milljónir bandaríkjadala eða jafnvirði um 1,3 milljarða króna var greitt upp fyrir nokkrum vikum með millifærslu af reikningi hans í Royal Bank of Canada. Þetta kemur fram í málskjölum sem lögð hafa verið fram í máli  slitastjórnar Glitnis við Jón Ásgeir og sex viðskiptafélaga hans úr gamla Glitni og greint var frá í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.

Í maí sagði Eyjan frá því að Jóni Ásgeiri og sex öðrum úr stjórnendateymi Glitnis á árunum 2007 og 2008 hefði verið stefnt fyrir dómstóli í New York vegna meintra fjársvika uppá 260 milljarða króna. Í þeirri stefnu er fullyrt að Jón hafi farið fyrir klíku sem hafi í eigin þágu mergsogið Glitni innanfrá og segir að  Verjendur hafa frest til loka þessa mánaðar til að skila inn rökstuðningi fyrir frávísunarkröfu en þegar er byrjað að takast á. Þannig reyna lögmenn verjanda að hnekkja kröfu um að Royal Bank of Canada verði gert að afhenda upplýsingar.

Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálmadóttir keyptu fyrir nokkrum árum tvær lúxusíbúðir við Gramercy Park í New York. Í málskjölum sem nú hafa verið lögð fram segir að 1,3 milljarða króna fasteignalán Jóns Ásgeirs hafi verið uppgreitt um miðjan maí með millifærslu af einkareikningi hans í Royal Bank of Canada. Sagt er að hjónin Jón Ásgeir og Ingibjörg eigi milljónir dollara á einkareikningum í kanadíska bankanum. Eyjan hefur áður greint frá því að slitastjórn Glitnis telur að sjömenningarnir eigi allir mikla fjármuni á reikningum víða um heim.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is