Lady Gaga leigir sér hús í Hollywood: Leiguverðið um 3 milljónir
Lady Gaga hefur tekið á leigu hús í Beverly Hills og það er sannarlega enginn kofi.
Í því eru fimm baðherbergi, bókasafn með viðarhillum frá gólfi og upp í loft, líkamsræktarsalur og sundlaug sem er byggð í hring svo að sundspretturinn þurfi ekki að stöðvast.
Akstursleiðin frá hliði upp að húsinu er rúmlega hálfur kílómeter og hægt er að geyma um 20 bíla í bílskúrum þar í kring.
Húsið er á tveimur hæðum og í húsaleigu greiðir Gaga um 3 milljónir á mánuði.
Nágrannar Lady Gaga í þessu hverfi eru meðal annara Nicole Kidman sem hafði eitt sinn hug á að kaupa húsið. Jessica Simpson og Penelope Cruz eru jafnframt grannar hennar.
Sjálf segist Lady Gaga ekkert yfir sig hrifin af Hollywood en hún heitir réttu nafni Stefani Germanotta og ólst upp í New York.
„Þó ég búi í Hollywood þá fær enginn mig til að elska borgina.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is