Viðskipti Miðvikudagur 07.07.2010 - 11:13 - Ummæli ()

Allir hvattir til að demba sér í framkvæmdir. Skattafrádráttur í boði

Það eiga beinlínis allir að efna til framkvæmda, samkvæmt átaki sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins, Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu auk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands hafa efnt til og kynnt var í morgun. Slagorð átaksins er „Allir vinna“.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að endurgreiðna 100% af virðisaukskatti vegna vinnu við endurbætur á húsnæði (í stað 60% áður) og einnig hefur Alþingi samþykkt lög sem veita hjónum allt að 300 þúsund kr. skattafslátt vegna vinnu iðnaðarmanna við endurbætur á húsnæði.

Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og forsvarsmenn aðila vinnumarkaðarins kynntu hvatningarátakið í nýbyggingunni á horni Lækjargötu og Austurstrætis og þar kom einnig fram að skattafrádráttur er einnig í boði vegna slíkra framkvæmda og getur hann numið allt að 200 þúsund krónum á einstaklinga og 300 þúsundum á fólk í sambúð. Einnig var lögð áhersla á að leitast við að útrýma svartri atvinnustarfssemi en með því er hægt að auka tekjur ríkisins um 40 milljarða króna á ári samkvæmt mati Samtaka iðnaðarins. Stjórnvöld hafa ennfremur leitað til fjármálastofnana um að bjóða framkvæmdalán á hagstæðum kjörum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is