Myndband með Leoncie valið í efsta sæti ömurlegra tónlistarmyndbanda
Íslendingurinn Leoncie hefur náð þeim vafasama heiðri að eiga versta myndbandið á erlendri vefsíðu sem gerði samantekt yfir slæm tónlistarmyndbönd.
Hún trónir þar á toppi listans yfir tíu verstu myndböndin sem voru gerð af amatör tónlistarmönnum en á þessu myndbandi flytur hún lagið Love in a Pub.
Í umsögn um myndbandið segir m.a. að þarna sé einfaldlega toppurinn þar sem slæm tónlist og slæm myndbandaframleiðsla fara hönd í hönd.
„Myndbandið er eins ófaglegt og þau gerast…“
„Í raun er allt myndbandið ‘vond hugmynd’ í hnotskurn.“
[youtube=www.youtube.com/watch?v=7AJpfwvIez8]
HÉR má sjá hin myndböndin níu sem voru valin á topp tíu listann yfir ‘ömurleg tónlistarmyndbönd sem eru fyndin án þess að ætla sér það’…
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
