Fimmtudagur 08.07.2010 - 19:10 - Ummæli ()

Borgin styður Regnbogann sem „heimili kvikmyndanna“

Komið hefur verið í veg fyrir að kvikmyndasýningar leggist af í Regnboganum og þar með í miðbæ Reykjavíkur. Borgarráð samþykkti í dag að veita hlutafélagi um rekstur svokallaðs „heimilis kvikmyndanna“ í Regnboganum 12 milljóna króna rekstrar- og framkvæmdastyrk. Hlutafélagið stefnir að því að hefja að rekstur kvikmyndahúss í húsinu í byrjun september.

Hagsmunafélög kvikmyndagerðarfólks og kvikmyndaunnendur hafa lengi barist fyrir því að komið verði á fót einhverskonar menningarbíói, eða „cinematheque“, í miðbæ Reykjavíkur. Eftir að hefðbundum kvikmyndahúsrekstri var hætt í Regnboganum var stofnað hlutafélag um slíka starfsemi og er hugmyndin að nýja kvikmyndahúsið sérhæfi sig m.a. í  nýjum listrænum og eldri sígildum kvikmyndum, auk þess sem áhersla verður lögð á fræðslu og starfsemi sem stuðlar að betra kvikmyndalæsi barna og unglinga. Reksturinn afmarki sig þannig frá rekstri annarra kvikmyndahúsa í borginni.

Hugmyndin var á stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir kosningar og var síðan nefnd í málefnaskrá flokksins með Besta flokknum, enda telur Jón Gnarr, borgarstjóri, að hún smellpassi að stefnu Besta flokksins um að gera borgina skemmtilegri.

„Reksturinn í Regnboganum stuðlar ekki aðeins að því að auka fjölbreytni kvikmynda í kvikmyndahúsum borgarinnar heldur glæðir menningu og mannlíf í miðborginni. Með því er unnið að einu meginmarkmiði Besta flokksins að gera borgina skemmtilegri,“ segir hinn nýi borgarstjóri.

Reykjavíkurborg styrkir rekstrarfélagið um tólf milljónir króna og er þannig stuðlað að því að koma því á fót og gera starfsemina sjálfbæra í framtíðinni. Annars vegar er gert ráð fyrir að sex milljónir renni til lagfæringar á húsinu, m.a. anddyri, aðkomu og framhlið. Hins vegar verði sex milljónum varið til að renna stoðum undir reksturinn fyrstu mánuðina. Stefnt er að því að hægt verði að hefjast handa við framkvæmdir 1. ágúst.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is