Viðskipti Föstudagur 09.07.2010 - 18:52 - Ummæli ()

Dómari í London trúir ekki Jóni Ásgeiri: Kyrrsetningu eigna ekki hnekkt

Jón Ásgeir var stórtækur í bresku viðskiptalífi, en dómari í Lundúnum trúir ekki öðru en að hann leyni eigum sínum fyrir dómstólnum.

Lögmanni Jóns Ásgeirs Jóhannessonar tókst ekki að sannfæra dómara í Lundúnum um réttmæti þess að hnekkja kröfu slitastjórnar Glitnis á alþjóðlegri frystingu eigna Jóns Ásgeirs. Dómarinn vísaði jafnframt frá kröfu þeirra um áfrýjun, enda trúir hann því ekki að Jón Ásgeir hafi gefið réttinum fullnægjandi upplýsingar um eigur sínar.

Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari Ríkisútvarpsins, var viðstödd málflutninginn í dag. Hún sagði í kvöldfréttum að mikið hefði verið rætt um sex milljarða króna lán Glitnis til Fons, en slitastjórnin álítur að það lán tengist einhverjum eigum Jóns Ásgeirs og félaga.

Dómari tók undir með slitastjórnnni, taldi ósennilegt Jón Ásgeir hefði gefið upp tæmandi lista yfir eigur sínar. Samkvæmt því sem Jón Ásgeir hefur gefið upp nema eigur hans í Bretlandi og á Íslandi aðeins 1,1 milljón punda, eða um 200 milljónum króna, og þótti dómaranum það fjarstæðukennt.

Þá var dómarinn ekki sannfærður um að ekki yrði reynt að koma undan eignum. Hann taldi því enga ástæðu til að hnekkja kröfu um frystingu eigna hans og hafnaði beiðni lögmanns Jóns Ásgeirs. Þá óskaði lögmaðurinn eftir því að fá að áfrýja málinu á annað dómstig, en því var líka hafnað.

Í þessu samhengi má nefna að matsfyrirtækið Kroll, sem hefur aðstoðað slitastjórnina í málinu, telur að Jón Ásgeir hafi þegar skotið mörgum verðmætum eigum undan, meðal annars glæsiíbúðinni á Manhattan, lúxussnekkjunni One 0 One og sveitasetri í Frakklandi, samtals að verðmæti milljarða króna.

Segir Iceland Foods eiga 38 milljarðana sem hurfu

Þá sagði Eyjan frá því fyrr í dag að samkvæmt tölvupósti frá Jóni Ásgeiri til Lárusar Welding, þáverandi forstjóra Glitnis, hafði Jón Ásgeir umráðarétt yfir 202 milljónum punda í breskum bönkum aðeins tveimur vikum fyrir bankahrun. Það jafngildir um 38 milljörðum króna í dag. Var þetta kallað „Sterling deposits – For your eyes only“ í tölvupóstinum. Slitastjórnin telur að Jón Ásgeir og hugsanlega nokkrir viðskiptafélagar hans hafi skotið þessum fjármunum undan.

Jón Ásgeir hefur ekki svarað símtölum, en í fréttum Stöðvar 2 í kvöld gaf hann skriflegt svar þar sem hann sagði að Iceland Foods hefði átt þessa fjármuni og eigi þá enn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is