Föstudagur 09.07.2010 - 19:00 - Ummæli ()

Lady Gaga ræður stjörnueinkaþjálfara – Vill losna við appelsínuhúð

Tracy Anderson er einkaþjálfari stjarnanna og hjálpar konum á öllum aldri að koma sér í gott form.

Lady Gaga er mætt til leiks hjá einkaþjálfaranum Tracy Anderson en sú er m.a. fræg fyrir að halda Madonnu og Gwyneth Paltrow í formi.

Að sögn radaronline.com rauk hún til Anderson eftir að fór að bera á appelsínuhúð á grönnum fótleggjunum.

Aðferðir Anderson eru sagðar hjálpa konum að komast í gott form á þess að líkaminn verði allt of stæltur. Courtney Cox og Shakira eru jafnframt meðal viðskiptavina hennar.

Paltrow er óspör á hrós í garð Tracy Anderson en hún skrifaði nýlega að æfingar með henni væru ein besta fjáfesting sem hún hefði gert.

„Hún er búin að sparka mér í form og rassinn á mér sem eitt sinn var á hraðri niðurleið er kominn upp aftur. Fyrir þetta verð ég henni ævinlega þakklát.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is