Sunnudagur 11.07.2010 - 21:30 - Ummæli ()

Spánn heimsmeistari. „Íslandsbaninn“ Iniesta tryggði sigur í framlengingu

Andrés Iniesta reynist oft vel á síðustu mínútunum, hvort sem það er gegn Íslandi, Chelsea eða í úrslitaleik HM í kvöld.

Spánverjar urðu í kvöld heimsmeistarar í fótbolta þegar þeir sigruðu Hollendinga í framlengdum úrslitaleik í Jóhannesarborg. Leikurinn var annars harður og grófur, lítið fyrir augað og fá marktækifæri litu dagsins ljós. Eina mark leiksins kom loks fjórum mínútum fyrir lok framlengingar þegar „Íslandsbaninn“ Andrés Iniesta skoraði með fallegu skoti hægra megin í teignum.

Hollendingar mótmæltu ákaft marki Iniesta, töldu hann hafa verið rangstæðan, en sjónvarpsmyndavélar sýndu glögglega að það átti ekki við rök að styðjast. Markið var fullkomlega löglegt, en hollenska vörnin brást einfaldlega vinstra megin. Spyrja má hvers vegna fyrirliði þeirra, Van Bronckhorst, var tekinn útaf en hann leikur þeim megin í vörninni.

Einsog sagt var frá í hálfleiksfrétt Eyjunnar var leikurinn mjög grófur og veifaði spjöldum sínum ótt og títt. Alls flugu 13 gul á loft og svo kom að því í framlengingu að hann dró réttilega upp „winston-pakkann“ og rak John Heitinga út af fyrir að toga í Iniesta í upprennandi marktækifæri. Hollendingar voru heldur grófari en Spánverjar, fengu átta gul spjöld og eitt rautt.

Auk þess fer leikurinn líklega í sögubækurnar sem tíðindaminnsti og leiðinlegasti úrslitaleikur í sögu HM, hugsanlega þó í samkeppni við tíðindalausan úrslitaleik Brasilíu og Ítalíu í Bandaríkjunum 1994. Bæði liðin í kvöld léku mjög stífan varnarleik og tóku litla áhættu. Arjen Robben fékk þó besta færi leiksins í síðari hálfleik, þegar hann komst einn inn fyrir vörn Spánar en lét Casillas verja frá sér með nokkurri heppni.

Spánverjar eru því bæði Evrópu- og heimsmeistarar. Það hefur aðeins tvívegis gerst áður, Þjóðverjar hömpuðu báðum titlum árið 1974 og Frakkar árið 2000. Enda þótt flestir telji Spánverja vel að sigrinum komnir og hafi leikið fallegustu knattspyrnuna, fóru þeir þó ekki taplausir í gegnum HM, því þeir töpuðu 0-1 fyrir Svisslendingum í fyrsta leik sínum á mótinu. Úrslitaleikurinn í kvöld var fjórði 1-0 sigur þeirra í röð og þeir skoruðu aðeins átta mörk í sjö leikjum í keppninni. Hollendingar sátu eftir með sárt ennið, enda áttu þeir frábært HM, unnu alla leiki sína á mótinu þar til þeir töpuðu á lokamínútum í framlengdum úrslitaleik.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is