Sunnudagur 11.07.2010 - 19:21 - Ummæli ()

Suðupunktur í Suður-Afríku. Fimm gul spjöld en ekkert mark í fyrri hálfleik

Kung fu eða karate? Nigel De Jong hefði átt að fá rautt spjald fyrir þetta fólskubrot á Xabi Alonso í fyrri hálfleik. Einsog sjá má er boltinn órafjarri þegar De Jong þrumar tökkunum í brjóst Baskans.

Fimm gul spjöld hafa flogið á loft í fyrri hálfleik úrslitaleik Hollendinga og Spánverja á heimsmeistaramótinu í fótbolta, en nú er leikhlé í Jóhannesarborg.

Fá marktækifæri urðu í fyrri hálfleik, en leikmenn virtust taugaveiklaðir og brutu af sér við lítil tilefni. Fyrst fékk fremsti maður í sókn Hollendinga spjald fyrir glórulaust brot. Þá var röðin komin að spænska varnarjaxlinum Carles Puyol og svo fékk grófasti leikmaður HM í ár, Mark Van Bommel, auðvitað spjald. Sergio Ramos braut líka klaufalega af sér með sömu afleiðingum.

Fimmta spjaldið hefði hinsvegar átt að vera blóðrautt. Nigel De Jong hjólaði í Xabi Alonso og smellti tökkunum í bringuna á Baskanum sem lá óvígur á eftir. Brot Hollendingsins lét frægt brot Zinedine Zidanes í úrslitaleiknum fyrir fjórum árum líta út einsog sandkassaleik.

Verði ekki breyting á leikskipulagi liðanna í síðari hálfleik má fastlega búast við að leikurinn fari markalaus í framlengingu. En það getur auðvitað breyst.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is