Jón Ásgeir Jóhannesson: Eyddi 60 milljónum á mánuði um sjö ára skeið

Jón Ásgeir eyddi 60 milljónum á mánuði um sjö ára skeið
Mánaðarleg einkaneysla Jóns Ásgeirs Jóhannessonar frá aldamótum og fram til bankahrunsins 2008 nam að meðaltali um 60 milljónum króna í hverjum einasta mánuði samkvæmt gögnum sem Jón Ásgeir hefur skilað inn til ensks dómara vegna kyrrsetningar eigna hans.
Sem kunnugt er samþykktu enskir dómstólar kyrrsetningarkröfu slitastjórnar Glitnis á hendur Jóni á föstudaginn var en mörgum spurningum þykir ósvarað varðandi fjármál Jóns eftir þær upplýsingar sem hann þar gaf upp en fréttastofa RÚV hefur dóminn undir höndum.
Var þar upplýst að mánaðarlaun Jóns nema 11 milljónum króna og því ljóst að Jón hefur þurft að neita sér um ýmislegt í kjölfar bankahrunsins miðað við mánaðarlega eyðslu síðustu ára þar á undan.
Ekki þykja öll kurl hafa komið til grafar með gögnum þeim er Jón hefur nú veitt enda vakti strax athygli dómarans í málinu hversu mjög eignir Jóns hafa rýrnað. Segist Jón aðeins eiga um eignir að upphæð 120 milljónir nú um stundir eða sem svarar til tveggja mánaða eyðslu á sjö árum fyrir hrun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is