Viðskipti Mánudagur 12.07.2010 - 04:08 - Ummæli ()

Kroll kannar hver átti 38 milljarðana sem Jón Ásgeir nefndi í tölvupósti

Malcolm Walker, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods, segir fyrirtækið hafa átt mikla fjármuni á bankareikningum haustið 2008. Hann getur ekki staðfest hvort það hafi verið 38 milljarðar króna, einsog Jón Ásgeir Jóhannesson nefndi í tölvupósti til Lárusar Welding, þáverandi bankastjóra Glitnis.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Kroll er nú að staðreyna hvort peningarnir hafi í raun tilheyrt Iceland Foods.

Slitastjórn Glitnis telur líklegt að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi átt 38 milljarða króna bankainnistæður í erlendum bönkum hálfum mánuði fyrir bankahrun. Byggir hún grun sinn á tölvuskeyti sem Jón Ásgeir Jóhannesson sendi Lárusi Welding, forstjóra Glitnis, með afriti á Jón Sigurðsson, forstjóra FL Group, viku fyrir þjóðnýtingu bankans.

Í samtali við fréttastofu Stöðvar tvö í gærkvöld sagði Jón Ásgeir innistæðurnar hafa hafa verið í eigu Iceland Foods en bæði FL Group og Glitnir voru á þessum tíma hluthafar í Iceland Foods. „Þetta voru því upplýsingar sem voru að fara á milli hluthafa,“ segir Jón Ásgeir. Ef það er rétt, eru áhöld um hvort Jóni Ásgeiri hafi verið heimilt að upplýsa Lárus Welding og Jón Sigurðsson.

Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, sem er stærsti hluthafinn í Iceland, segist munu grennslast fyrir um hvort innistæðurnar tilheyrðu í raun Iceland Foods, það væru hagsmunir allra að upplýsa málið.

Á Stöð 2 í gærkvöld var Jón Ásgeir spurður hvort þessar innstæður hafi farið til hans, félaga í hans eigu eða félaga sem tengjast honum. Svarið var: „Aldrei nokkurn tímann“.

Þá sagði hann að slitstjórn Glitnis hafi aldrei reynt að staðreyna eða afla upplýsinga um þetta hjá sér áður en ásakanirnar voru settar fram.
„Það hefði verið mjög auðvelt að svara þessu áður en þau komu fram með þessar rakalausu lygar.“ Hann segir að innstæðurnar hafi tilheyrt keðjunni sjálfri og þetta hafi verið kallað „Sterling deposits“ í tölvupóstinum því innstæður voru í breskum pundum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is