Mánudagur 12.07.2010 - 16:00
- Ummæli
()
Victoria Beckham: Eyddi 600.000 í kynæsandi undirfatnað
Eyðsluklóin Victoria Beckham eyddi hárri upphæð í kynæsandi undirfatnað þegar hún brá sér í verslunarferð í London á dögunum.
Að sögn News of the World keypti hún m.a. klút til að binda fyrir augun sem kostaði tæpar 20.000 krónur sem er einungis brot af bruðlinu því alls keypti hún undirföt fyrir um 600.000 krónur.
Meðal þess sem fór í innkaupakörfuna voru sokkabönd, korselett úr leðri og sitthvað fleira.
Búningarnir sem hún valdi voru m.a. í S&M stílnum, rómantískir og stelpulegir og einfaldir og elegant.
Að sögn heimildarmanna blaðsins skemmti hún sér konunglega við innkaupin og þótti ljóst að hún væri ákaflega hrifin af manni sínum.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is