Fiskurinn hrein lúxusvara. Meðalverð hækkað um 52 prósent á einu ári

Neytendur hafa ekki farið varhluta af hækkandi fiskverði
Meðalverð á íslenskum fiskmörkuðum fyrstu mánuði þessa árs er hvorki meira né minna en 52 prósentum hærra en það var fyrir ári síðan. Reiknaðist þá meðalverð á kílói að fiski 181 króna en er nú 276 krónur. Fiskverð til íslenskra neytenda hækkar til jafns við verð á mörkuðum.
Greinir Viðskiptablaðið frá því að fram til júlí hafi selst 54 þúsund tonn af fiski á innlendum mörkuðum sem er öllu minni sala en fyrstu sex mánuði síðasta árs. Þá seldust rúm 60 þúsund tonn yfir sama tímabil.
Þrátt fyrir sölusamdráttinn er verðmætið mun meira en þá. Tæpir 11 milljarðar fengust fyrir 60 þúsund tonn fyrir ári en hingað til á þessu ári nemur verðmætið alls 14,9 milljörðum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is