Þriðjudagur 13.07.2010 - 08:51 - Ummæli ()

Loks naflaskoðun hjá Orkuveitunni. Stjórn ákveður rekstrarúttekt

Orkuveitan hefur staðið illa um langt skeið

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í gær að láta gera allsherjar rekstrarúttekt á fyrirtækinu en slíkt hefur ekki verið gert áður. Skal meðal annars finna ástæður þess hvers vegna fyrirtækið er svo illa statt fjárhagslega eins og raun ber vitni

Var úttekt þessi samþykkt samhljóða á fundi stjórnar en hugmyndin er að þar skulu verða dregnar saman skuldbindingar fyrirtækisins, fjárfestingar og afrakstur þeirra.

Í kjölfarið skal ráðast í aðhaldsaðgerðir með lækkun rekstrarkostnaðar og mögulega skal fresta frekari fjárfestingum OR. Reynt skal til hins ítrasta að koma í veg fyrir að slæm staða lendi á borgarbúum í formi hækkandi gjaldskrár.

Niðurstaða úttektarinnar skal liggja fyrir eftir mánuð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is