Miðvikudagur 14.07.2010 - 14:56 - Ummæli ()

Norskir reagge unnendur kunna vel að meta íslenska Hjálma

Hið ofurslaka hippa reagge Hjálma fellur ekki bara í kramið hjá Íslendingum heldur hafa frændur okkar norðmenn einnig dálæti á bandinu.

Hjálmar eru nýkomnir til baka úr heimsókn til Noregs þar sem þeir spiluðu á tónlistarhátíðinni Træna í Norður-Noregi ásamt FM Belfast síðustu helgi.

Tónleikar hljómsveitarinnar hlutu frábærar undirtektir en hátíðin hefur um árabil reynt að bóka Hjálmana.

Skipuleggjendur Træna eru þeir sömu og standa að baki By:Larm hátíðinni í Osló en hátíðin er þekkt fyrir afslappað andrúmsloft og frábæra náttúru.
Fimmtudaginn 22. júlí halda drengirnir í Hjálmum aftur út til Noregs til að spila á Vinjerock tónlistarhátíðinni sem fram fer helgina 22. – 25. júlí í Jötunheimum, um 250 km frá Osló en áhugasamir verða að bíta í það súra epli að uppselt er á þessa hátíð fyrir margt löngu.

Við Íslendingar getum þó unað glaðir við því Hjálpar spila oft og iðulega á Íslandi:

Á föstudagskvöldið spila þeir t.a.m. á garðveislutónleikum FTT í Hljómskálagarðinum. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og er aðgangur ókeypis. Seinna um kvöldið kemur hljómsveitin fram á tónleikum á staðnum Faktorý sem er gamla Grand rokk en tónleikar hljómsveitarinnar þar á upphafsárum hennar eru eflaust mörgum í fersku minni.

Á laugardaginn spilar hljómsveitin svo á tónleikum í Félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði en þar fer listahátíðin LungA fram.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is