Miðvikudagur 14.07.2010 - 10:15 - Ummæli ()

Staða Aska og Avant veldur þingmönnum áhyggjum. Boða til fundar

Fundað um áhrif skipun skiptastjórnar Aska og Avant

Óskað hefur verið eftir af hálfu Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, að viðskiptanefnd Alþingis komi saman hið fyrsta til að fjalla um þá stöðu sem upp er kominn vegna lánafyrirtækjanna Askar Capital og Avant.

Segir Eygló við Vísi að áhyggjur hennar snúist fyrst og fremst um endurreisn tryggingafélagsins Sjóvá en að baki þeirri endurreisn að hluta séu hlutabréf í lánafyrirtækjunum; 6,2 milljarðar króna frá Öskum og 2,8 milljarðar króna frá Avant. Það hafi fyrst og fremst verið fyrir þessi bréf sem íslenska ríkið eignaðist meirihluta í Sjóvá eftir bankahrunið.

Telur Eygló eðlilegt að fulltrúar fjármálaráðuneytisins, Fjármálaráðuneytisins, Seðlabankans, Bankasýslunnar og efnahags- og viðskiptaráðuneytisins mæti á fund nefndarinnar þegar hann svo verður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is