Ísland eina landið sem merkir ekki erfðabreytt matvæli. NS: Skert valfrelsi

Neytendasamtökin eru ósátt við svar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um merkingar á erfðabreyttum matvælum.
Ísland er eina landið á öllu Evrópska efnahagssvæðinu sem merkir ekki erfðabreytt matvæli og fóður sérstaklega. Neytendasamtökin hafa gert athugasemd við þetta og telja að stjórnvöld taki þannig eðlilegt valfrelsi frá neytendum.
Samtökin sendu erindi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins þann 13. apríl sl. um að slíkar reglur verði settar hér sem fyrst. Í svari ráðuneytisins kemur fram að beðið verði með að setja reglur um merkingu á erfðabreyttum matvælum og fóðri hér á landi þar til viðræðum EFTA-landanna og ESB lýkur og ákvæði um þetta verða tekin upp í EES-samninginn. Ennfremur telur ráðuneytið að ef stjórnvöld grípi þegar til aðgerða varðandi merkingar á erfðabreyttum matvælum væri um einhliða ákvörðun að ræða án samþykkis framkvæmdastjórnar ESB og að slík lausn væri mjög erfið ef ekki óframkvæmanleg.
Þetta telja Neytendasamtökin óskiljanlegt svar af hálfu ráðuneytisins „og þá ekki ekki síst í ljósi þess að samtökin eru aðeins að fara fram á að sömu reglur gilda hér og innan ESB. Einnig í ljósi þess að önnur EFTA-lönd, Noregur, Sviss og Lichtenstein, hafa öll sett reglur um merkingar á erfðabreyttum matvörum og allavega Norðmenn hafa strangari reglur en ESB. Þessar þjóðir hafa getað gert þetta án þess að reglur ESB hafi verið teknar upp í EES-samninginn. Það er því eðlilegt að spurt sé; gilda önnur lögmál hér en í öðrum Evrópulöndum?“ segir frá Neytendasamtökunum.
Samtökin minna á að „Ísland er eina landið á EES-svæðinu þar sem ekki þarf að merkja slík matvæli sérstaklega. Um leið eru íslensk stjórnvöld að taka eðlilegt valfrelsi frá neytendum.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is