Föstudagur 16.07.2010 - 09:59 - Ummæli ()

Sætuefni í mat og drykk geta aukið verulega líkur á fyrirburafæðingum

Sætuefni finnast í velflestur sykurskertum gosdrykkjum

Samkvæmt nýrri rannsókn, sem meðal annars fræðingar við Háskóla Íslands tóku þátt í, bendir ýmislegt til að neysla á sætuefnum í mat og drykk geti aukið líkur á fyrirburafæðingum um hartnær 80 prósent. Er þetta ein fyrsta stóra rannsóknin sem fram fer á svokölluðum sætuefnum sem finnast í fjölmörgum neysluvörum.

Fréttablaðið greinir frá niðurstöðum rannsóknarinnar sem var samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Statens Serum Institut og Harvard háskóla.

Sýna niðurstöðurnar að þær konur sem neyttu lítra á dag eða meira af drykkjum með sætuefnum voru í 78 prósent meiri hættu að eignast barnið sitt fyrir 37. viku.

Verkefnið var stór ferilrannsókn sem 59.334 danskar konur tóku þátt í strax frá upphafi meðgöngu. Þær svöruðu spurningarlistum varðandi mataræði og tekin voru regluleg viðtöl við þær í gegnum síma alla meðgönguna.

Unnið var úr upplýsingunum og þær bornar saman við upplýsingar frá fæðingardeildum sjúkrahúsa eftir fæðingar. Í ljós kom að þær sem höfðu neytt drykkja með sætuefnum voru í mun meiri hættu að eignast börn sín fyrir tímann. Neysla sykraðra drykkja virtist ekki hafa nein áhrif.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is