Þriðjudagur 20.07.2010 - 08:01 - Ummæli ()

Kynferðisbrotum fjölgar hérlendis. Samskiptavefir auðvelda áreiti

Netið auðveldar kynferðisafbrotamönnum að stunda brot sín

Kynferðisafbrotum sem með einu eða öðrum hætti er hægt að tengja netnotkun fer fjölgandi hér á landi með síauknum fjölda sem notfærir sér netið og sérstaklega samskiptasíður á vefnum til tjáningar.

Sigríður Hjaltested, aðstoðarsaksóknari hjá kynferðisbrotadeild, segir við Morgunblaðið að enginn vafi leiki á fjölgun mála og sem fyrr sé erfitt að sanna eða afsanna sekt í slíkum málum. „Sönnunarstaðan er býsna erfið og margslungnari eftir að netið fór að koma inn í þetta hjá okkur. Við erum að tala um mörg mál. Það er svo mikið samskiptaflæði í gegnum netið og sérstaklega milli kynja.“

Finnur lögregla fyrir aukingu brota allt niður í fjórtán ára aldur en í slíkum tilvikum skiptir samþykki fórnarlambs ekki máli því öll slík mál teljast brot. Er kynferðislegur lögaldur fimmtán ára.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is