Þriðjudagur 20.07.2010 - 08:11 - Ummæli ()

Varaformaður Vinstri grænna kannast ekki við hótanir vegna ESB aðildar

Engin sms fengið með hótunum.

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, hefur ekki sjálf né veit hún um aðra flokksmenn sem fengið hafa hótunarskeyti á borð við þau sem samflokksmaður hennar Ásmundur Einar Daðason hefur tjáð sig um að undanförnu.

Sagði hann að þingmönnum VG hefði verið hótað í smáskilaboðum í aðdraganda atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar hafi verið gert að því skóna að stjórnarslit gætu orðið ef ekki fengist stuðningur frá þingmönnum VG.

Vísir forvitnaðist um málið hjá Katrínu en Ásmundur hefur ekki nefnt nein nöfn máli sínu til stuðnings. Hvorki hvaðan umrætt skeyti komu né hverjir áttu að hafa fengið þau nákvæmlega.

Segist Katrín ekki geta fullyrt að slík skeyti hafi ekki farið milli manna og viðurkennir fúslega að ESB málið í heild sinni hafi reynst flokknum erfitt


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is