Róbert Wessmann borgar ekki seinni 500 milljónirnar til Háskólans í Reykjavík
Róbert Wessmann, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri samheitalyfjafyrirtækisins Actavis, mun ekki leggja Háskólanum í Reykjavík, HR, til þann hálfa milljarð króna í fjárstyrk sem hann gaf skólanum vilyrði fyrir í september 2007.
Fjárfestirinn hefur nú þegar látið skólann fá hálfan milljarð króna en upphaflega átti þetta að vera einn milljarður króna. Róbert segir í samtali við DV að ástæðan fyrir þessu sé einfaldlega sú að efnahagshrunið hafi sett stórt strik í reikninginn hjá honum. „Miðað við efnahagsþrengingarnar og hvernig staðan er á öllu hér á Íslandi finnst mér ekki líklegt að ég klári það,“ segir hann.
Greiðslan frá Róberti kom í gegnum eignarhaldsfélagið Bakhjarlar HR ehf. en hann átti tæp 80 prósent í félaginu á móti um 20 prósenta hlut Glitnis. Róbert lagði skólanum til þennan hálfa milljarð króna þegar stofnaður var sérstakur Þróunarsjóður Háskólans í Reykjavík á haustmánuðum 2007. Peningarnir voru notaðir til að efla akademískan styrk HR með því að styðja við rannsóknarstarf í skólanum. Fyrir upphæðina eignaðist Róbert 30 prósenta hlut í HR.
Róbert segir að þrátt fyrir að hann muni ekki greiða milljónirnar 500 sé upphæðin sú hæsta sem gefin hafi verið til skólamála á Íslandi. „Þetta er langhæsta fjárframlag sem gef- ið hefur verið til skólamála hér á Ís- landi. Þannig að við erum mjög stolt af því,“ segir Róbert en eins og áður segir eignaðist hann hlut í skólanum fyrir vikið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is