Viðskipti Miðvikudagur 21.07.2010 - 07:20 - Ummæli ()

Steingrímur efast um lögmæti kaupanna en segir nefndina ráða för

Fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra eru ósammála um það hvort kaup Magma Energy á hlut í HS orku standist lög. Forstjóri Magma segir fyrirtækið reiðubúið að ræða forkaupsrétt ríkisins.

„Ég tel að það orki mjög tvímælis að fjárfesting í gegnum skúffufyrirtæki í Svíþjóð sé í samræmi við lög,“ segir Steingrímur J. Sigfússon við Fréttablaðið í dag.

Telur nefndina ráða, en ekki ríkisstjórn

Engu að síður segir Steingrímur að ríkisstjórnin sitji uppi með þá niðurstöðu sem nefnd um erlenda fjárfestingu tók.

„Ég er þeirrar skoðunar að þetta standist ekki anda laganna og er þá frekar sammála minnihluta nefndarinnar. En svona er staðan. Meirihluti nefndarinnar tók þessa afstöðu og við sitjum uppi með það í bili.“

Steingrímur segir flokk sinn hafa þá stefnu að stór og mikilvæg orkufyrirtæki séu betur komin í eigu Íslendinga og vill nýta alla möguleika til þess að vinda ofan af málinu.

„Það leikur enginn vafi á því að lög eiga eftir að taka breytingum á þessu sviði á næstu misserum,“ segir hann. „Það þarf að þrengja lagarammann til muna varðandi ráðstöfun auðlinda, hámarkstíma samninga tengda þeim og skorður á eignarhaldinu.“

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, segir að miðað við það mat sem hún hafi séð sýnist henni að engin lög hafi verið brotin með kaupunum, en þau megi alltaf endurskoða. Hafa verði í huga að hluturinn hafi ekki verið í eigu hins opinbera heldur einkaaðila.

„Um er að ræða tugmilljarða skuldbindingu og við erum að vinna að því að tryggja forkaupsrétt ríkisins á þessum hlut. Þegar betur árar getum við farið inn í þessi kaup ef Magma ákveður að selja,“ segir hún við blaðið.

Ásgeir: Styttri tími geti þýtt hærra orkuverð

Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma Energy Iceland ehf., segir fyrirtækið reiðubúið að ræða forkaupsrétt ríkisins.

„Þetta á auðvitað ekki við ef lög verða sett á samninginn. Ef ríkið ætlar að ræða við okkur um þessi mál þá er ekki líklegt að samningnum verði rift,“ segir Ásgeir.

„Aðalatriðið er að fyrirkomulagið stuðli að skynsamlegri nýtingu. Mjög stuttur tími getur unnið gegn því og einnig leitt til hærra orkuverðs. En við erum mjög reiðubúnir til að ræða þessi mál við ríkið og sveitarfélögin,“ segir hann.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is