Fimmtudagur 22.07.2010 - 16:43 - Ummæli ()

Íslendingur sýknaður í svæsnu fjársvikamáli í Englandi

Íslendingurinn Baldur Sigurðsson og tveir Bretar voru í dag sýknaðir af dómstól í Ipswich, Englandi, í fjársvikamáli sem teygði anga sína víða um heim, en tveir Bretar voru hins vegar sakfelldir í málinu og dæmdir fyrir verslun með verðlaus hlutabréf.

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að Bretarnir sakfelldu hafi verið dæmdir í sjö ára fangelsi en alls námu viðskiptin rúmum 1.300 milljónum króna. Bretarnir sakfelldu töldust hafa beitt blöndu af blekkingum og þrýstingi til að sannfæra um 1.250 einkafjárfesta um að láta þeim fé í hendur. Snerust viðskiptin m.a. um verslun með hlutabréf í fjórum fyrirtækjum sem voru ekki á hlutabréfaskrá og gáfu þar af leiðandi ekki kost á bréfum. Svokallaðir „kyndiklefar“ (e. boiler room), eða úthringimiðstöðvar, voru notaðir til að halda bréfunum að fjárfestunum í gegnum síma. Starfa slíkir klefar ólöglega en þeir eru gjarnan með heimilisfang utan Bretlands. Lögðu svikahrapparnir féð inn á reikninga á Spáni, Lettlandi, Kýpur og víðar en Petel mun hafa haft 960.000 pund upp úr krafsinu, eða hátt í 180 milljónir króna.

Svikamyllan gekk að sögn blaðsins, sem vitnar til Serious Fraud Office í Bretlandi, út á ýtna sölumennsku gagnvart einkafjárfestum þar sem upplognum greiningum á framtíðargróða var haldið á lofti, rétt eins og að mikill hagnaður væri handan við hornið. Meðal fyrirtækjanna var Toppurinn UK Ltd, fyrirtæki sem sérhæfir sig í húsbyggingum úr timbri, en því var haldið fram að það undirbyggi markaðssókn í stálgrindarhúsum og jafnvel sölu á vörum sínum til Íraks vegna Íraksstríðsins. Kemur fram á vef að slík markaðssókn hafi aldrei komið til álita. Með líku lagi hafi fyrirtækið COL Systems Ltd átt að vera í þann mund að markaðssetja hugbúnaðinn „Crime-On-Line“, tækni sem lögreglan á Íslandi var sögð hafa gefið grænt ljós á. Átti það sér enga stoð í veruleikanum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is