AGS jákvæður: Þriðja endurskoðun á dagskrá í september
Franek Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi hefur staðfest með fréttatilkynningu að þriðja endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands og AGS muni fara fram í septemberbyrjun og er sjóðurinn mjög jákvæður á þróun mála hérlendis.
„Áætlunin hefur verið að skila árangri. Samdrátturinn hefur verið grynnri en búist var við, verðbólgan er á niðurleið, dregið hefur úr ytra ójafnvægi og krónan er orðin stöðug. Fjármál hins opinbera hefur styrkst og eftirlitskerfi og regluverk bankanna hefur verið endurbætt. Unnt er að byggja á undanfarandi velgengni með endurnýjuðum þrótti og vel tímasettri framkvæmd stefnumótunar,“ segir Franek Rozwadowski f.h. AGS.
Þessi niðurstaða kemur fram í kjölfar yfirferðar sendinefndar AGS undir forystu Mark Flanagan 19.-22. júlí. Þó fram komi að „fáein tæknileg smáatriði (séu) ófrágengin“ er stefnt að þriðju endurskoðun í september-byrjun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is