Föstudagur 23.07.2010 - 10:00 - Ummæli ()

Kelis tjáir sig um skilnaðinn

Söngkonan Kelis hefur greint frá því að enginn viti raunverulega ástæðu fyrir skilnaði hennar og rapparans Nas, en þau skildu þegar hún var komin 7 mánuði á leið.

Hún sagði í viðtali til blaðið Jet að hún og fyrrverandi eiginmaður hennar séu þau einu sem viti sannleikann og allar sögusagnir sem fjölmiðlar hafa birt í blöðum séu allar ósannar. Hún segir að í 99% tilvika sé fólk bara með getgátur, enginn hefur vitað hvað er í gangi og enginn veit hvað er í gangi núna. Hún segir fjölmiðlana búa til sögur sem allar séu rugl.
Hjónin skildu á seinasta ári eftir fjögurra ára hjónaband, aðeins tveim mánuðum áður en hún fæddi son þeirra, Knight.  Söngkonan hefur sagt að hún ætli að einblína á söngferlin sinn, trú hennar á guði og uppeldinu á syni sínum.
Kelis segir:
Lífið heldur áfram þótt hlutirnir fari ekki eins og þú planaðir. Þegar maður verður óléttur fær maður þessa furðulegu tilfinningu, þótt þú sért búin að vera sofandi alla nóttina þá er líf inní þér sem virkar fullkomlega, og sonur minn Knight er fullkominn.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is