Starfsmenn Gnúps með nær 4 milljónir á mánuði að meðaltali
Fjárfestingafélagið Gnúpur greiddi 9 starfsmönnum félagsins 405 milljónir króna í laun á árinu 2007, samkvæmt frétt DV upp úr ársskýrslu Gnúps, sem samþykkt var um miðjan júlí. Hver hinna 9 starfsmanna hefur þá fengið að meðaltali 3.75 milljónir króna á mánuði í laun.
Skilanefnd Glitnis stýrir fjárfestingafélaginu en bankinn tók félagið yfir í ársbyrjun 2008. Eigendur félagsins voru Magnús og Birkir Kristinssynir, Kristinn Björnsson og Þórður Már Jóhannesson, sem jafnframt var forstjóri félagsins. Í ársreikningum kemur fram að launa- og rekstrarkostnaður Gnúps var 570 milljónir króna árið 2007.
Gnúpur var einn stærsti hluthafinn í FL Group, stærsta hluthafa Glitnis, og var það fyrsta stóra fjárfestingafélagið til að fara á hliðina í aðdraganda hrunsins. Það þjónaði því hagsmunum Glitnis að láta félagið ekki fara í þrot og því var það tekið yfir og eigum þess komið yfir til annarra aðila. Fyrir utan fjárfestinguna í FL Group átti Gnúpur einnig nokkurra prósenta hlut í Kaupþingi. Þetta voru helstu eignir félagsins.
Ársreikningi félagsins fyrir árið 2007 hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu og hefur hann nú loks skilað sér en um það bil tveimur árum of seint. Skilanefnd Glitnis hefur undanfarið rannsakað hvort Glitnir hafi notað Gnúp í markaðsmisnotkun eftir að félagið var tekið yfir af bankanum í janúar 2008. Talið er að Glitnir hafi notað Gnúp sem eins konar ruslakistu og fært þangað hlutabréf í bankanum þegar hann var kominn að þeim lögbundnu mörkum sem hann mátti eiga – Fréttablaðið greindi fyrst fjölmiðla frá þessari rannsókn í maí síðastliðnum. DV tekur fram að umrædd rannsókn tengist ekki fyrri eigendum Gnúps heldur aðeins meðferðinni á félaginu eftir að Glitnir hafði tekið það yfir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is