Mánudagur 26.07.2010 - 10:21 - Ummæli ()

Mörður Árnason: Ekkert í stjórnarsáttmálanum um Magma Energy

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir í nýrri bloggfærslu að ekkert í Magma-málinu og stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og VG kalli á að einstakir þingmenn hætti stuðningi við ríkisstjórnina. Til að þingmaður hætti að styðja ríkisstjórn þurfi annað hvort að gerast; ríkisstjórnin fer í bága við stjórnarsáttmálann eða að við einhverjar nýjar aðstæður sem ekki er gert ráð fyrir í þessum sáttmála brýtur ríkisstjórnin gegn anda stjórnarsáttmálans. Hvorugt af þessu gildi í Magma-málinu. Í samtali við Eyjuna segir Mörður að yfirlýsingar Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur og Atla Gíslasonar hjá VG um brot á stjórnarsáttmála í Magma-málinu hafi enga stoð í stjórnarsáttmálanum sjálfum. „Ef slík innistæða væri fyrir hendi myndi ég styðja þessar yfirlýsingar. En ég rannsakaði stjórnarsáttmálann og fann ekkert þar. Ég hef því tilhneigingu til að líta á þessar yfirlýsingar sem málkrók eða stílbrigði, til að leggja áherslu á orð sín, frekar en að full meining sé að baki orðunum,“ segir Mörður.

Mörður minnir í bloggfærslunniá að það hafi verið undir forystu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks sem ríkið hlut sinn í HS vorið 2007, „til hins illræmda Geysis Green Energy“. Þar með hafi GGE ekki bara eignast hlut í fyrirtækinu sem slíku heldur beinan eignarhlut í auðlindunum. Þetta hafi verið upphafið. „Með nýju lögunum frá 2008 var komið í veg fyrir að þetta gæti gerst aftur. Þar segir að ekki megi selja auðlindina einkaaðilum. Með sömu lögum var svo kveðið á um uppskiptingu orkufyrirtækjanna, þar sem veiturnar skyld vera í félagslegri meirihlutaeigu en við eignarhaldi virkjunar- og rekstrarhlutans voru engar hömlur. Þessi lög urðu til í ríkisstjórninni vondu sem Samfylkingin þvældist í með Sjálfstæðisflokknum, og báru þess merki. Leigutíminn er of langur og endurnýjunarréttindin eru túlkuð afar frjálslega í Magma-samningnum – og núna finnst okkur undarlegt að íslenska ríkinu skuli ekki hafi verið áskilinn forkaupsréttur við sölu hluta í orkufyrirtækjunum. Meginatriði í lögunum var hinsvegar þetta tvennt: Auðlindirnar í opinberri eigu, uppskipti orkufyrirtækja. Og lögin urðu til þess að forsvarsmenn HS – sem lögin náðu ekki til – ákváðu að skipta fyrirtækinu upp og setja auðlindirnar aftur til sveitarfélaganna. Lögin leyfðu hinsvegar einkahlut í orku-partinum, og Magma sá sér þar leik á borði. Hvernig sem mönnum líkar það verður veskú að viðurkenna að það var lögunum samkvæmt (undanskil hér deiluna um sænsku skúffuna, sem er efnislega frekar ómerkileg)“.

Mörður minnir VG á að þingmenn VG hafi setið hjá við afgreiðslu laganna. „Greiddu ekki atkvæði. Það var ekki einu sinni nafnakall við þriðju umræðu í þinginu. Í stjórnarmyndunarviðræðunum í maí 2010 hefur VG greinilega lagt svo mikla áherslu á þetta að á HS er ekki minnst einu orði, hvorki beint né óbeint. Samt er staðan þá sú að einkaaðili – GGE – átti verulegan hlut. Um sumarið seldi GGE Magma part af þessum hlut. Seinna á árinu 2009 – með VG í ríkisstjórn – keypti Magma hlut OR, svo Hafnarfjarðar. Og loks allan GGE-hlutinn. Og þá loksins vöknuðu þjóðfrelsisliljurnar í VG“.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is