Mánudagur 26.07.2010 - 10:53
- Ummæli
()
Svarthöfði ruddist inn í bankann
„Svarti Pétur ruddist inn í bankann,“ sungu Stuðmenn hér um árið en það var hinsvegar Svarthöfði sem ruddist inn í banka í New York síðasta föstudag og sagði gjaldkera að halda kjafti.
Maðurinn var með skotvopn undir skikkjunni en ekki geislasverð. Hann ógnaði gjaldkera með byssu og krafðist þess að hún léti sig hafa háa upphæð.
Ræninginn komst undan með peningana en forsvarsmenn bankans hafa ekki gefið upp hversu háa upphæð var um að ræða.
Þetta mun vera annað furðulega bankaránið sem framið er í New York á skömmum tíma.
Fyrir skemmstu rændi annar maður banka en sá var með pottaplöntu og afskorin blóm í fanginu sem hann notaði til að fela byssu sem hann síðar notaði gegn gjaldkera.
Frá þessu greinir Reauters.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

