Atli Gísla: Samningur Magma málamynda- gerningur, hefur ekkert gildi

Atli Gíslason er ósammála þeim sem telja ríkið ekki geta gripið inní Magma-samninginn. Segir málamyndagerninga ekki standast lög.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, telur að ríkið eigi að taka hlut Magma Energy eignarnámi reynist samningarnir ekki ólögmætir.
„Hann gengur gegn tilgangi laga um erlenda fjárfestingu og gengur líka gegn EES-reglum. Ef það gengur ekki þá vil ég bara að þessi hlutur sé tekinn eignarnámi með sérlögum eða hvernig sem það mál virkar,“ segir Atli í Morgunblaðinu í dag.
Hann kveðst viss um ólögmæti samningsins og telur sænska fyrirtækið málamyndagerning til að komast hjá EES-reglum.
„Þetta er alger málamyndagerningur bara til þess að fara framhjá ákvæðum laga og markmiði þeirra. Það er ólögmætt og slíkir samningar hafa ekkert gildi,“ segir Atli.
Forsvarsmenn Magma Energy og HS Orku eru þessu ósammála og segjast ekki sjá hvernig hið opinbera eigi að geta stöðvað kaup Magma Energy á hlut Geysis Green Energy í HS Orku.
„Katrín Júlíusdóttir hefur réttilega bent á það að ríkisstjórnin er ekki aðili að þessum samningi. Samningurinn sé milli tveggja fyrirtækja og þess vegna geti ríkisstjórnin ekki rift samningnum. Atli Gíslason hefur bent á að það eigi ekki að rifta heldur ógilda, ég veit ekki hvernig það á að gerast, ég hef ekki þekkingu á því. Þetta er bara samningur sem er samkvæmt lögum,“ segir Ásgeir Margeirsson, framkvæmdastjóri Magma á Íslandi við blaðið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is