Miðvikudagur 28.07.2010 - 16:52
- Ummæli
()
85% vilja ekki að erlendir aðilar geti keypt íslenskar náttúruauðlindir
Samkvæmt skoðanakönnun sem DV segir að Capacent hafi unnið fyrir Teit Atlason bloggara eru tæplega 85% landsmanna andvígir því „að erlendir aðilar geti keypt íslenskar náttúruauðlindir“. Aðeins 4,5% voru hlynntir, en 10,6% sögðust enga skoðun hafa á málinu.
Könnunin, sem var netkönnun, var framkvæmd dagana 21. – 28. en úrtakið var 1200 manns á öllu landinu 16 ára og eldri. Svarhlutfall var 65,9 prósent. Orðalag spurningarinnar kemur ekki nánar fram í fréttinni.
Teitur Atlason „kveðst sjálfur vera að kaupa þessa spurningu af Gallup og ætlar hann að fjármagna hana með samskotum enda sé hann nýútskrifaður námsmaður í atvinnuleit sem eigi ekki krónu“.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is