Miðvikudagur 28.07.2010 - 14:34 - Ummæli ()

ESB og EFTA ósamhljóða um ábyrgð á föllnum bönkum – utan Icesave

Norska vefsíðan ABCNyheder greinir frá því að í svari Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) við fyrirspurn fjölmiðilsins komi fram að ríki á EES-svæðinu beri ekki ábyrgð á innstæðum í föllnum bönkum umfram greiðslugetu innstæðutryggingasjóða.

Í fréttinni kemur fram að svar framkvæmdastjórnarinnar sé í andstöðu við boðskap Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem telur að slík ábyrgð gildi. „ESA-uttalelsen konkluderer med at den islandske staten må erstatte tapene innskytere fikk ved Icesave-skandalen“. Svar framkvæmdastjórnar ESB er hins vegar: „EU støtter prinsippet om at «forurenseren skal betale» og deler målsettingen om at kostnadene ved en framtidig finanskrise ikke skal falle uforholdsmessig på skattebetaleren“. En framkvæmdastjórnin er hins vegar á sömu skoðun og ESA hvað ísland varðar sérstaklega og telur að íslenska ríkinu beri að greiða innstæður á Icesave reikningum í Hollandi og Bretlandi. Tvær ástæður séu fyrir því: Annars vegar hafi útfærslan á íslenska innstæðutryggingasjóðnum ekki uppfyllt skilyrði tilskipunarinnar um innstæðutryggingar. Hins vegar verði að horfa til þess að íslenskir innstæðueigendur fengu sínar innstæður tryggðar að fullu ólíkt hollenskum og breskum innstæðueigendum. Það hafi brotið gegn jafnræðisreglunni.

Þá greinir Morgunblaðið frá því að á vefnum Euobserver sé fullyrt að á leiðtogafundi ESB í júní hafi komið fram að Icesave-málið væri „sameiginlegt mál alls sambandsins“ þótt framkvæmdastjórn ESB hafi lýst því yfir, að málið sé eingöngu á milli Íslands, Bretlands og Hollands.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is