Klámmyndaleikkona skorin á háls
Óður hnífamaður fékk átta ára fangelsisdóm í London í gær fyrir að ræna veðmangara og skera klámstjörnu á háls.
Savannah Gold átti sér einskins ills von þegar ráðist var á hana á heimili hennar og hún skorin á háls.
Maðurinn, sem hefur fengið nafngiftina ‘Gifti hnífabrjálæðingurinn’ eða ‘Married Knife Maniac’ hjá breska blaðinu The Sun, hafði sama dag rænt tvær veðmálsbúllur með platbyssu.
Savannah fannst nakin í blóði sínu þegar nágrannar hennar í suður-London heyrðu ópin frá henni.
Maðurinn, Shohidul Islam (26), réðist inn til hennar, batt hana og barði með pottaplöntu áður en hann mundaði hnífinn. Hann sagðist skammast sín fyrir þetta þegar lögregla handtók hann.
Savannah þarf að leggja feril sinn í klámmyndabransanum á hilluna meðan hún nær aftur fullri heilsu en hún átti víst framtíðina fyrir sér í Bandaríkjunum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
