Miðvikudagur 28.07.2010 - 12:21 - Ummæli ()

Magma-málið krufið á borgarafundi en Katrín segist ekki komast

Borgarafundur verðuir haldinn um Magma málið í Iðnó í kvöld og hafa þingmenn og ráðherrar verið sérstaklega boðaðir. Sólveig Jónsdóttir hjá Attac-samtökunum, sem efna til fundarins, segir að ráðherrunum Katríni Júlíusdóttur, Gylfa Magnússyni og Steingrími J. Sigfússyni hafi verið boðið að sitja við pallborð og svara spurningum um málið.

„Katrín hefur afboðað komu sína og segist vera upptekin, en við vitum til þess að hún hefur fengið marga hvatningapósta um að mæta samt,“ segir Sólveig, sem reiknar fyllilega með að hinir ráðherrarnir mæti. „Þá höfum við boðið sérstaklega Ragnheiði Elínu Árnadóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að koma og tala fyrir einkavæðingarsjónarmiðum og þar til annað kemur í ljós reikna ég með því að hún komi“.

Fundurinn í Iðnó hefst kl. 20:00. Fundarstjóri verður Benedikt Erlingsson leikari og frummælendur Björk Sigurgeirsdóttir viðskiptafræðingur, Jón Þórisson arkitekt og Sigmundur Einarsson jarðfræðingur. Auk ofangreindra hefur Maria Elvira Méndez Pinedo, doktor í Evrópurétti verið boðið í pallborð og þangað eru líka allir þingmenn sagðir velkomnir og er sérstaklega vonast eftir Atla Gíslasyni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is