Viðskipti Fimmtudagur 29.07.2010 - 07:20 - Ummæli ()

Íbúðum Íbúðalánasjóðs fjölgaði um helming frá áramótum vegna vanskila

Um það bil fjórðungur íbúða í eigu Íbúðalánasjóðs er nú leigður út, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Í lok júnímánaðar sl. átti Íbúðalánasjóður 739 íbúðir sem hann hafði leyst til sín vegna vanskila lántakenda. Slíkum íbúðum í bókum sjóðsins hefur fjölgað hratt frá áramótum, aukningin nemur meira en 53%. Yfirtaka íbúða hefur aukist talsvert það sem af er ári. Á öllu árinu 2009 leysti sjóðurinn til sín 254 íbúðir, en á fyrstu sex mánuðum ársins í ár hafa 428 íbúðir staflast upp í bókum sjóðsins.

Langmestur var fjöldinn í mars, en þá leysti Íbúðalánasjóður til sín heilar 190 íbúðir. Mest munaði þar um 120 íbúðir á Austurlandi, en sjóðurinn leysti til sín fjórar blokkir á Reyðarfirði og þrjár á Egilsstöðum í kjölfar gjaldþrots leigufélags þar í héraði. Samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði er tæpur helmingur íbúða í bókum félagsins tilkominn þar vegna gjaldþrots leigufélaga.

Um það bil fjórðungur íbúða í bókum sjóðsins er nú í útleigu. Hingað til hefur viðskiptavinum leigufélaga sem fara í þrot boðist að leigja íbúðir áfram af sjóðnum. Jafnframt geta þeir einstaklingar sem fara í þrot fengið að leigja áfram, samkvæmt verði sem sýslumaður ákvarðar. Eftir því sem næst verður komist hefur einn einstaklingur nýtt sér það úrræði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is