Viðskipti Fimmtudagur 29.07.2010 - 19:36 - Ummæli ()

Lárus Blöndal: Jákvætt að ESB telji ríkisábyrgð ekki gilda á innstæðum

Ný og áhugaverð staða er komin upp í Icesave-deilunni, segir Lárus Blöndal.

Sú afstaða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að ekki sé ríkisábyrgð á bankainnstæðum á Evrópska efnahagssvæðinu, hlýtur að vera mjög mikilvægt innlegg í svar íslenskra stjórnvalda við áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA frá í vor, sagði Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður, í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.

Einsog Eyjan sagði frá í gær, sagði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í svari til norska fréttamiðilsins ABC Nyheter, að ríkisábyrgð væri ekki á innstæðum á Evrópska efnahagssvæðinu, ef tryggingasjóður viðkomandi ríkis hefði ekki bolmagn til að standa undir ábyrgðunum. Er framkvæmdastjórnin þar með ósammála Eftirlistsstofnun EFTA, sem taldi ríkisábyrgð eiga að gilda. Engu að síður taldi framkvæmdastjórnin að íslenska ríkinu bæri að standa við Icesave-skuldbindingarnar, þar sem innleiðing löggjafarinnar á Íslandi hefði ekki verið gerð með réttum hætti.

Að mati Lárusar er með þessu ný staða sé komin upp í Icesave-deilunni, því nýverið hafi íslenskum stjórnvöldum borist áminningarbréf frá Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, sem segi að íslenska ríkið beri ábyrgð á Icesave innistæðunum upp að rúmlega 20 þúsund evrum.

„En þarna er því alfarið hafnað að einhver slík ríkisábyrgð sé til staðar, heldur eingöngu sagt að ekki hafi verið rétt staðið að innleiðingu kerfisins, sem ég leyfi mér nú að efast um að sé rétt,“ sagði Lárus.

Þessi staði er spennandi, segir Lárus, en hann á sæti í samninganefnd Íslands vegna Icesave. Hann bendir á að reyndar hafi hann, ásamt Stefáni Má Stefánssyni prófessor, alla tíð haldið þessu fram, en margir verið því ósammála.

Lárus bendir á að Rannsóknarnefnd Alþingis hafi sérstaklega skoðað innleiðingu umræddrar tilskipunar Evrópusambandsins í íslensk lög og komist að þeirri niðurstöðu í ítarlegu máli að rétt hafi verið staðið að innleiðingunni. Ísland þarf að svara áminningarbréfi ESA í september.

„Og ég held að þetta hljóta að vera mjög mikilvægt innlegg í það svar, þessi afstaða framkvæmdastjórnarinnar.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is