Hundruð hafa ekki rétt á atvinnustyrk. Hamlar fólki að fá vinnu
Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun. Þetta á til dæmis við um þá sem hafa dvalið lengi erlendis. Þeir standa verr að vígi þegar kemur að umsóknum um atvinnu, þar sem atvinnurekandi getur ekki fengið styrk með þeim úr Atvinnuleysistryggingarsjóði. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.Ástæðan er sú að styrkurinn er greiddur frá ríkinu, en sveitarfélög greiða ekki sams konar styrk. Vinnuveitandinn fær ígildi atvinnuleysisbóta greitt frá Vinnumálastofnun, eða um 150 þúsund krónur og sparar sér þannig umtalsverðan launakostnað.
Fréttablaðið veit um tilvik þar sem maður hafði fengið vilyrði fyrir vinnu, en atvinnurekandinn hætti við að ráða hann þegar hann komst að því að maðurinn ætti ekki rétt á atvinnuleysisbótum og því fengi vinnuveitandinn ekki atvinnustyrkinn.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að ekkert banni sveitarfélögum að greiða sams konar styrk með atvinnulausum, til að auka líkurnar á að þeir verði ráðnir. Sveitarfélögin hafa hins vegar í sumum tilvikum þegið styrkinn, þegar þau hafa ráðið til sín fólk af atvinnuleysisskrá.
„Fyrstu sex mánuði ársins hefur Vinnumálastofnun greitt til fyrirtækja, sveitarfélaga, stofnana og félagasamtaka rúmar 239 milljónir króna vegna starfsþjálfunar og átaksverkefna. Það þýðir að í hverjum mánuði hafa verið um 360 einstaklingar við störf með þessum formerkjum,“ segir Gissur.
Þetta á aðeins við um atvinnuleitendur með bótarétt úr sjóðnum, sumarátak fyrir námsmenn og atvinnuleitendur stendur utan við þessar tölur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is