Moody’s lækkar horfur fyrir lánshæfismat Íslands – næst fyrir ofan ruslflokk
Matshæfisfyrirtækið Moody’s hefur lækkað horfur fyrir lánshæfismat íslenska ríkisins niður í Baa3, en það er neðsti flokkurinn fyrir ofan svokallaðan ruslflokk. Fyrirtækið hafði hækkað matið í stöðugar horfur í apríl, en lækka það nú aftur niður í neikvæðar horfur.
Í tilkynningu frá Moody’s á Bloomberg fréttaveitunni segir að dómur Hæstaréttar gengistryggðu lánin geti mögulega valdið miklu tapi bankanna og að ríkið þurfi að hlaup undir bagga með bankakerfinu. Þó er tekið fram að ekki sé enn vitað hverjar verði endanlegar lyktir málsins.
Moody’s tekur einnig fram að Íslendingum hafi ekki enn tekist að leysa úr deilu við Breta og Hollendinga vegna Icesave-skuldbindinganna.
Már er samt bjartsýnn
Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, telur að breytingin á lánshæfi þurfi ekki að hafa neikvæð áhrif. Már telur brýnt að eyða óvissu í hagkerfinu en telur aðspurður að Icesave-deilan hafi óveruleg áhrif, enda hafi ekkert nýtt komið fram í henni að undanförnu. Hann kveðst almennt bjartsýnn:
„Það er svo margt um þessar mundir sem er að þróast á betri veg í undirliggjandi efnahagsstöðu þjóðarinnar,“ segir hann í Morgunblaðinu í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir þetta mat og segir matsfyrirtækin starfa pólitískt og ófaglega.
„Ég gef lítið fyrir pólitískar ályktanir lánshæfismatsfyrirtækjanna, enda tel ég að þau starfi almennt ekkert sérstaklega faglega,“ segir við blaðið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is