Sjóvá vildi eiga Suðurlands- veg og fá greitt fyrir hvern bíl – „Góður bissness“
Forsvarsmenn Sjóvar vildu að fyrirtækið kæmi að breikkun Suðurlandsvegar og rukkaði inn fyrir hvern bíl sem færi um veginn. Þór Sigfússon, forstjóri fyrirtækisins, lagði þetta til í tölvupósti til Karls Wernerssonar og Guðmundar Ólasonar í febrúar 2006. Þór sagði að það gæti verið „góður bissniss“ fyrir Sjóvá að eiga hinn breikkaða Suðurlandsveg og að ríkið myndi þá borga félaginu fyrir hvern bíl sem færi um veginn. Karl Wernersson taldi að hann þyrfti að aðstoða ríkisvaldið við breikkunina.
DV hefur tölvupósta undir höndum sem sýna samskipti Þórs Sigfússonar við Karl Wernersson:
„Sælir félagar,
Nú er mikið rætt um breikkun Suðurlandsvegar og lítið virðist þróast í þeim efnum. Ég er að velta fyrir mér hvort við eigum ekki að taka okkur hlutverk í verkefni eins og þessu.
Sjóvá gæti óskað eftir viðræðum við stjórnvöld um að eiga og reka breikkaðan Suðurlandsveg og ríkið greiddi Sjóvá (sérstöku félagi í eigu Sjóvá, Baugs o.fl.) fyrir hverja bifreið sem ekur um veginn. Samningurinn yrði til 35 ára. Ég held að það sé þörf á fyrirtæki sem gæti leitt hóp fjárfesta inn á þessar brautir, þetta geti verið góður bissniss fyrir okkur og við höfum líklega meiri þekkingu á þessu en flestir aðrir (Guðmundur Óla o.fl.) Auðvitað þyrfti svona að gerast að unangengnu útboði en við gætum sett löppina inn fyrir þröskuldinn með því að taka frumkvæðið! Hugmyndin er því að senda stjórnvöldum bréf og viðra þessar pælingar við þau. Auðvitað sé ég í þessu PR fyrir okkur, Sjóvá í forystu, en staðreyndin er sú að PPP verkefni um heiminn eru að koma vel út fyrir fjárfesta, ekki síst shadow pricing verkefni (þ.e. eins og í þessu tilfelli þar sem ríkið greiddi fyrir hverja bifreið sem ekur veginn).
Kveðja Þór“
„Sæll Þór Þetta er athyglisverð hugmynd.
Fram til þessa hef ég að mestu verið að gæla við koma ríkisvaldinu til bjargar hvað varðar umönnun okkar eldri borgara með byggingu elliheimila á borð við Sóltúnið, en hvers vegna ekki að laga til í samgöngum, þar er einnig allt í klessu hjá ríkinu, enda þarf varla að spyrja hvaða flokkur ræður ríkjum (ríður rækjum) í þessu ráðuneyti.
En endilega að kíkla/kýla á málið Ég styð þetta fullkomlega.
Kv KW“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
