Viðskipti Föstudagur 30.07.2010 - 07:34 - Ummæli ()

Tilskipun ESB um innstæðu- tryggingar var innleidd á Íslandi án athugasemda

Tveir fyrrverandi viðskiptaráðherrar, Finnur Ingólfsson og Valgerður Sverrisdóttir, kannast ekki við að neinar athugasemdir hafi borist frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þess efnis að ekki hafi verið staðið rétt að innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um innistæðutryggingar hér á landi fyrir um áratug. Þetta segir í Morgunblaðinu í dag.

„Ég er alveg viss um það að það komu aldrei neinar athugasemdir af hálfu nokkurs aðila um innleiðinguna á þessu hérna,“ segir Finnur. Undir þetta tekur Benedikt Árnason, fyrrum skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, sem hafði umsjón með innleiðingu tilskipunarinnar.

Einsog komið hefur fram í fréttumá Eyjunni sagði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í svari til norska fréttavefjarins ABC Nyheter í vikunni, að ekki væri gert ráð fyrir ríkisábyrgð á bankainnstæðum í umræddri tilskipun. Íslendingum bæri eftir sem áður að endurgreiða innstæðueigendum innan sambandsins á þeim forsendum m.a. að ekki hefði verið staðið rétt að innleiðingu tilskipunarinnar.

Steingrímur: Engin breyting

„Þetta kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart. Ég sé ekki að þetta breyti stöðunni í neinum grundvallaratriðum,« sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, en vildi ekki tjá sig frekar um málið.

„Þetta er bara ánægjuleg staðfesting á að ríkisábyrgð sé ekki til staðar,“ segir Höskuldur Þórhallsson, Framsóknarflokki, um svar ESA.

Eignir innstæðutryggingasjóða í fimmtán elstu ríkjum Evrópusambandsins voru töluvert undir lögboðnu lágmarki árið 2005. Þetta kemur fram í skýrslu ESB um tryggingasjóðakerfið.Hér á landi skal tryggingasjóður innistæðueigenda innihalda um 1% af tryggðum innistæðum. Því marki hefur yfirleitt ekki verið náð frá 2002. Ástæðan er hraður vöxtur innistæðna í bankakerfinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is